Hvað er tólinst ?
Tónlist er listgrein sem tjáir sig í hljóði og þögn. Í tónlist er taktur, hljóðstyrkur, tónar, hljóðbylgjueiginleikar og áferð. Tónlist er upplifun sem getur komið fram sem falleg, sorgleg, tilfinningarík og mjög áhrifamikil.
Tónlist getur verið misjöfn og misgóð og veltur hún á smekk fólksins og á þeim sem samdi verkið en það sem tónlistin hefur sameiginlegt er að hún túlkar oftast ákveðna tilfinningu eða segir sögu að einhverju tagi.
Tónlist getur verið misjöfn og misgóð og veltur hún á smekk fólksins og á þeim sem samdi verkið en það sem tónlistin hefur sameiginlegt er að hún túlkar oftast ákveðna tilfinningu eða segir sögu að einhverju tagi.
Síðan við munum eftir okkur hefur tónlist verið stór hluti af lífi okkar allra sem búum í nútímasamfélagi og erum flesta, ef ekki alla daga umkringd tónlist.
|
Við þrír höfum allir mikla ástríðu fyrir tónlist og ákváðum að gera lokakverkefni um þá list og hvernig hún hefur áhrif á okkar daglega líf. |
Við munum fjalla um tegundir tónlista, tónlistarsmekk almennings, hvar og hvenær við hlustum á tónlist, áhrif hennar á andlegu og líkamlegu líðan fólks og af hverju við elskum þessa list. |
Við spurðum okkur þá spurningu hvort að tónlist hafi í raun og veru áhrif á andlega líðan okkar. Könnun okkar gaf í skyn að fólkið leitar mikið í tónlist í mörgum ólíkum hugarástöndum, hvort sem það sé reitt, leitt, glatt, stressað eða finnur fyrir ákveðni tilfinningu sem tjáir sig út frá tónlistarsmekki þeirra á ákveðnri stundu.
Getur tónlist breytt hugarfari og metnaði í manneskju ? |
Breyrist smekkurinn ?Rannsókn
Breytist tónlistarsmekkur þinn eftir hvernig þér liður? |
HVAÐA TEGUND ?
Rannsókn Ef svo hvaða tónlist hlustarðu á þegar þér líður illa? |
Hvaða tegund ?Rannsókn
Ef svo hvaða tónlist hlustarðu á þegar þér líður vel? |
Hugarástand
Við lifum í samfélagi þar sem pressan er gríðarlega mikil, þá sérstaklega fyrir okkur ungmenni. Hér á Íslandi er ætlast til að maður eigi nýjustu símana og gangi um í flottustu og dýrustu fötunum. Að við förum allavega tvisvar til útlanda á ári og að við göngum með buxurnar á hælunum allan ársins hring. Stundum fær fólk bara nóg og þá leitar það þá mjög oft í tónlistina. Hún getur veitt okkur kjark, huggun, rými til þess að brotna niður og gefið möguleika á endalausum tilfinningum sem komast fram á yfirborðið bara með því að hlusta á tónlist.