Í þessu verkefni höfum við komist að því að tónlist hefur áhrif á okkar daglega líf. Að hún móti bæði andlegu og líkamlegu líðan okkar og að mismunandi tónlist ber með sér ólíkar tilfinningar. Í rannsókninni okkar kom í ljós munur er á kynjum þegar kemur að tilfinningum í tónlist. Við lærðum að meðal íslenski unglingurinn og foreldrið hans hlusti venjulega ekki á sömu tónlistina og að tónlistarsmekkur breytist oft eftir aldri. Við komumst einnig að því að tónlist getur læknað líkamlega heilsu og getur haft mjög jákvæð áhrif á bæði andlegu og líkamlegu líðan okkar. Það að tónlist getur gefið manni möguleika á að finna fyrir endalusum tilfinningum finnst okkur alveg einstakt.